Í samvinnu við Hvíldarklett er hægt að fá á leigu ,,Bobbyana” til að fara á sjóstöng eða svartfugl. Leiga fyrir bátinn er 20.000 á dag. Einnig er hægt að fá leiðsögumann til að fara með til að finna fiskinn, og síðan er hægt að fara með fiskinn á Hótelið og láta elda hann þar um kvöldið á Talisman. Ferskara verður það ekki.
Bátarnir eru 7,5 metrar á lengd með 130 HP diesel vél, dýptarmæli, GPS með kortum, sjálfvirkum tilkynningarskyldu búnaði, talstöð útvarpi og CD spilara. Tvö 380 lítra fiskikör og allur nauðsynlegur björgunarbúnaður. Mest geta farið sex manns í hverri ferð.

Annar kostnaður er:
Olía og tryggingar.