Suðureyri er vinalegt þorp sem stendur utarlega við sunnanverðan Súgandafjörð, undir fjallinu Spilli. Íbúar eru um 300 talsins. Suðureyri tilheyrði áður Suðureyrarhreppi, en varð hluti Ísafjarðarbæjar við sameiningu sveitarfélaga árið 1996.
Sagan
Suðureyri varð löggiltur verslunarstaður árið 1899, en þá um aldamótin voru einungis tvö hús á staðnum. Upp úr því fór þó íbúunum mjög fjölgandi. Ásgeirsverslun á Ísafirði reisti þar salthús og kom sér upp verslunarútibúi og árið 1906 var fyrsti vélbáturinn keyptur til Suðureyrar. Fimm árum síðar var íbúatalan komin í 200. Fiskvinnsla hefur ætíð verið aðal atvinnuvegur staðarins, smábátaútgerðin hefur verið öflug og sett mikinn svip á bæjarlífið. Hlutverk ferðaþjónustu hefur svo orðið æ stærra á síðari árum.
Ferðaþjónusta
Á Suðureyri er hótel, tjaldsvæði, veitingastaður og ýmis önnur þjónusta fyrir ferðamenn. Þar er einnig eina útisundlaugin innan marka Ísafjarðarbæjar og er hún afar vel sótt, einkum á sumrin. Handverkshópurinn Á milli fjalla starfrækir einnig vinsæla handverkssölu í bænum. Á undanförnum árum hefur verið byggð um gríðar mikil þjónusta í tengslum við sjóstangveiði, en á hverju ári taka þorpsbúar á móti hátt í tvö þúsund erlendum stangveiðimönnum. Á Suðreyri hefur ferðafólk átt þess kost að skoða starfsemi frystihússins Íslandssögu og alger skylda er að koma við í lóninu og gefa þorskunum æti. Þá eru margar fallegar gönguleiðir á þessum slóðum.