
Í Grunnavík er tilvalið að njóta einstakrar náttúrufegurðar í stórbrotnu umhverfi í nálægð við helstu perlur Jökulfjarða og Hornstranda. Áætlunarsiglingar eru í boði frá Bolungarvík til Grunnavíkur, Sléttu, Hesteyrar og Aðalvíkur. Leiguferðir eru í boði til annarra staða svo sem Hornvíkur.
Dagsferðir eru í boði fyrir hópa til Grunnavíkur þar sem í boði er bátsferð, stutt gönguferð að kirkjunni í Grunnavík og kaffi og meðlæti drukkið að Sútarabúðum að lokinni gönguferð. Mikilvægt er að panta ferðir með góðum fyrirvara og best er að hafa samband í síma 852-4819 eða í síma 854-8263 yfir sumarið.
